Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars

Þú gætir verið svolítið ráðvilt/ur þennan mánuðinn. Þér kann að finnast þú hvergi passa inn í hópinn og þú getir ekki alveg verið þú sjálf/ur. Á sama tíma viltu vera til þjónustu reiðubúin/n og gera eitthvað mikilvægt, sem skiptir máli, án þess að týna sjálfum/ri þér. Mundu að þú ert sterk/ur og kraftmikil/l. Hugsaðu um þig fyrst, jafnvel þó þú þurfir að hafa fyrir því.

Heilsa þín hefur verið betri og þú ert stressuð/aður. Hvíldu þig í smá tíma á hverjum degi og skipuleggðu þig vel. Vítamín eru líka eitthvað sem þú ættir að skoða. Þú ert á réttri leið og ekki láta afbrýðissemi annarra hafa áhrif á þig. Vertu alltaf sanngjörn/gjarn við aðra.

Sjá einnig: