Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar – 18. febrúar

Ótti, depurð og reiði eru allt tilfinningar sem manneskjan finnur fyrir. Þegar þú finnur fyrir þeim, skaltu minna þig á að þú ert ekki ein/n. Passaðu upp á þig. Á komandi vikum mun ganga betur í vinnunni. Þér finnst gaman í vinnunni og kemur hlutum auðveldlega í verk. Ef þú hefur verið að fresta vinnutengdum ákvörðunum er kominn tími til að taka þær núna.

Þú getur staðið þig mjög vel í vinnu – ef þú nærð að halda aftur á þér á réttum tímum en þú átt það til að vera óþolinmóð/ur og hvatvís. Í þessum mánuði gætir þú átt það til að vera eyðslukló, en farðu varlega með það sem þú átt, því hlutirnir eru fljótir að eyðast.

Sjá einnig: