Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Vogin

Vogin
23. september – 22. október

Heilsa þín og vellíðan ættu að vera í forgangi hjá þér, fyrri helming mars og þú ert hvött/hvattur til að hugsa vel um þig, líkama og sál. Ef starfið þitt eða persónulegt samband er að valda þér streitu, tjáðu þig um það.

Þú berð ekki ábyrgð á öllum heiminum. Þér líður samt stundum eins og þú sért svampur sem dregur í sig öll vandamál fólksins í kringum þig. Skoðaðu í hvað þú eyðir tíma þínum og orku alla daga. Það gæti verið að þú sért að flytja, tímabundið eða varanlega. Ekki leyfa fortíðinni, samviskubiti og ótta að stoppa þig í því sem þú vilt gera.

Sjá einnig: