Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Jafnvægi? Hvaða jafnvægi? Þegar þú ætlar að gera eitthvað gerir þú það alla leið! Ekkert hálfkák. Það er samt eitthvað nýtt að fara að gerast. Eitthvað sem gæti krafist breytinga. Ætlarðu að taka skrefið eða halda þig við það sem þú þekkir svo vel? Taktu þér tíma til að taka ákvarðanir.

Þetta er ekki rétti tíminn til að gefa í og taka þér of mikið í fang. Notaðu þennan mánuð í að fínpússa það sem vel gengur, sköpun þína og vellíðan. Góðir hlutir gerast hægt. Þú þarft ekki alltaf að vera með allt á hreinu. Starfsframi þinn er í blóma.

Sjá einnig: