Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí – 22. ágúst

Það geta verið einhverjar hindranir í vegi þínum en þú kemst yfir þær. Vertu vakandi fyrir smáatriðum og ekki leyfa ótta og fullkomnunaráráttu að vera fyrir þér. Eins mikið og þig langar að takast á við ákveðið verkefni með eldmóð og orku, þarftu aðeins að stjórna eldmóði þínum. Þú skalt vera alveg viss í þinni sök áður en þú gefur út stórar yfirlýsingar.

Sambandstengd mál gætu komið til sögu í þessum mánuði. Þú gætir þurft að íhuga hvort þú viljir stjórna þessu „konungsríki“ eða taka þér þitt sæti við borðið. Að þessu sögðu, gæti verið kominn tími til að segja skilið við einhvern og einbeita þér að sjálfri/um þér.


Sjá einnig: