Stjörnuspá fyrir mars 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Kæra Naut, þessi mánuður verður mánuður umbreytinga og sjálfuppgötvunar hjá þér. Taktu eftir því hvernig þú átt það til að bæla niður tilfinningar þínar og viðbrögð sem eru þér eðlislæg. Hæfileiki þinn til að vera róleg/ur og hafa stjórn á skapi þínu er aðdáunarverður, en ef þú heldur áfram að bæla allt niðri mun pirringurinn taka allt of mikið pláss í huga þínum. Það er dásamlegt að vaxa og þroskast og tileinka sér ný viðmið og þú munt ekki sjá eftir því.

Þú þarft að tengjast rótum þínum og vantar meiri tíma til að einbeita þér að þínu fólki, fjölskyldunni. Ef þig langar að stækka fjölskylduna þína er tíminn núna. Ef þú ert með samviskubit útaf einhveju er komin tími til að sætta sig við orðinn hlut og ef við á, að biðjast afsökunar. Vertu sönn/sannur.


Sjá einnig: