Blake Lively – Var í ræktinni í 13 tíma á dag

attends the "Mr Turner" premiere during the 67th Annual Cannes Film Festival on May 15, 2014 in Cannes, France.

Leikkonan Blake Lively (28) var í ræktinni í 13 klukkustundir á dag þegar hún var að leika í nýjustu kvikmynd sinni The Shallows og segir hún að það hafi verið eins og að vera í maraþoni. Blake er gift stórleikaranum Ryan Reynolds og eiga þau dótturina James, sem er 17 mánaða gömul, en þau eiga einnig von á öðru barni sínu saman.

Sjá einnig: Ryan Reynolds og Blake Lively glæsileg í Hvíta húsinu

Hún segir að það hafi verð ótrúlega gott að hafa góðan þjálfara á meðan tökunum stóð og að það hafi verið heppilegt að ná að koma sér í gott form eftir fyrri meðgöngu sína.

Það voru 8 mánuðir frá því að ég eignaðist barn, svo að líkami minn var þá þegar orðinn allt öðruvísi en hann var vanur að vera. Það er sama hvað, líkaminn mun aldrei koma til með að vera samur.

Blake trúir því að hún hefði aldrei komist í svona gott form án þess að fá þessa aðstoð frá þjálfaranum. Tökur kvikmyndarinnar höfðu í sjálfu sér verið algjört maraþon, þar sem hún þurfti að standa stanslaust í öldugangi í 13 tíma á dag, með engum pásum, alla daga vikunnar.

359633A100000578-3656181-image-m-78_1466681560267

blake-lively-pregnant-black-dress

blake-lively-pregnant-with-ryan-reynolds-baby-ftr

SHARE