Harðákveðinn páfagaukur lætur EKKERT stoppa sig

Páfagaukar taka líka bað. Reyndar finnst páfagaukum alveg hryllilega gaman að busla.Þessi hér er þó nokkuð klókur, en hann er útsmoginn – kann á eldhúskranann og lætur eigandann – sem er þolinmæðin uppmáluð – ekki segja sér hvað er rétt í málinu.

Sjá einnig: Einhverfur maður smíðar hús fyrir gæludýrin

Erfitt er að segja til um hvort er fyndnara, átök eigandans við sjálfan páfagaukinn, sem vill hafa vatnið á fullum krafti meðan hann kælir tásurnar undir hressilegri vatnsbununni svo sullast niður á gólf – eða sú staðreynd að páfagaukurinn veit upp á hár hvernig á að skrúfa frá krananum og lætur eigandann ekki komast upp með neitt múður.

Væru ekki allir til í að sulla með einum svona í eldhúsvaskinum?

SHARE