Jennifer Aniston er brjálæðislega hamingjusöm

Jennifer Aniston fékkst loks til þess að ræða um leynilegt brúðkaup sitt í þættinum Entertainment Tonight. Jennifer lét þó ekki mikið í ljós um viðburðinn margumrædda og þegar hún var innt eftir myndum frá athöfninni sagði hún einfaldlega:

Við veittum okkur þann munað að njóta þessa augnabliks aðeins með okkar nánustu og ég ætla bara að vera sjálfselsk og halda því þannig.

Sjá einnig: Matthew Perry & Matt LeBlanc ekki boðið í brúðkaup Jennifer Aniston

Miklar vangaveltur hafa verið um brúðarkjól Aniston, sérstaklega eftir að þessi mynd fór eins og eldur í sinu um internetið:

2B74FD2800000578-3202667-Fooling_fans_A_fan_page_for_the_actress_posted_this_image_over_t-a-1_1439930826020

Myndin reyndist svo vera fölsuð þannig að kjóllinn er ennþá hulin ráðgáta. Þó svo Jennifer hafi ekki viljað ræða brúðkaup sitt af neinu viti sagðist hún vera alveg brjálæðislega hamingjusöm.

SHARE