Maður finnur barn umvafið teppi í garði

Raul Marin var á leið sinni í vinnuna, þar sem hann gekk fram á nokkuð sem virtist vera skítugt teppi. Í forvitni sinni tók hann upp símann sinn og myndaði þegar hann var að ganga að teppinu og sér til mikillar furðu komst hann að því að í teppinu var nýfætt barn með naflastrenginn enn fastann á.

Sjá einnig: Flækingshundur bjargar nýfæddu barni – Vörum við myndefninu

Hann tók barnið upp og rauk með það á næsta sjúkrahús og til allrar lukku er stúlkubarnið heilbrigt í dag. Raul segir að með þeim hafi myndast ótrúleg tenging og þar sem ekki hefur enn náðst að hafa uppi á foreldrum stúlkunnar, vill hann ættleiða barnið.

bl4

 

https://www.youtube.com/watch?v=J1nYV303vh8&ps=docs

SHARE