Reykjandi Salma Hayek

Salma Hayek (49) var aldeilis í flottri múnderingu í pásu einni sem hún var í, við tökur á nýjustu kvikmyndinni sem hún leikur í. Hún var í bleikum kjól, með svuntu, í dúnmjúkum bleikum grísainniskóm og reykjandi sígarettu.

Sjá einnig: 10 konur sem eru eldri en þig grunar

Þetta er fremur óvanaleg sjón, þar sem Salma er vanalega alltaf í sínu fínasta pússi og nú til dags þykir það merkilegt að sjá til heimsfrægra einstaklinga fá sér smók.

Hún var stödd við tökur á myndinni How To Be A Latin Lover, þar sem fram koma einnig leikarar á borð við Raquel Welch, Kristen Bell, Michael Cera og Rob Lowe. Hún hefur einnig nýlega lokið við tökur á kvikmyndinni Hitman´s Bodyguard, ásamt leikurunum Ryan Reynolds, Samuel L. Jackson og Gary Oldman.

Salma er leikkona í hæsta gæðaflokki, en þess vegna einmitt bregður fólki í brún að sjá hana í þessari æðisgengnu útfæringu.

Sjá einnig:Áhugaverður klæðaburður á The British Fashion Awards

 

ss

sss

ssss

SHARE