10 dásamlegir hlutir sem þú þarft að vita um leggöngin þín

Þú veist alveg örugglega núna að leggöngin þín eru virkilega áhrifamikil.

Þessi ótrúlegi líkamshluti getur leitt til dásamlegs unaðar, mikilla verkja og það sem best er, þaðan getur komið lítill einstaklingur í heiminn. Þess vegna er afar mikilvægt að vera með allt á hreinu þarna niðri. Í orðsins fyllstu merkingu.

Hérna á eftir má lesa heillandi staðreyndir um þína allra heilögustu.

Hún getur höndlað ansi ákafar æfingar.

Vöðvinn í leggöngum er afar sterkur, segir Alyssa Dweck M.D og meðhöfundur af bókinni V is For Vagina. Grindarbotnsæfingar eru öflugar og styrkja grindarbotninn. Ef hann er æfður daglega (eins og á að gera), þá færðu miklu öflugri fullnægingar.  Er til einhver betri ástæða til að æfa hann?

Mataræðið hefur áhrif á það hvernig lyktin er þarna niðri.

Það er svo sem ekki búið að rannsaka þetta mikið en sú lykt sem er á milli fótanna á þér getur breyst eftir því hvaða tími mánaðarins er eða ef þú ert að borða eitthvað eins og t.d hvítlauk.

Snípurinn er með fleiri taugaenda en nokkur annar líkamshluti.

Ekki furða að hann sé miðstöð fullnægingar.

Sjá einnig: Kynlífið: Hvað er „pegging“?

Leggöngin þenjast út þegar þú stundar kynlíf.

Hefur þú einhvern tíman spáð í það afhverju það er erfitt að setja túrtappa þarna inn? Á meðan þú getur stundað kynlíf með karlmanni sem er vel vaxinn niður. Þetta er vegna þess að í kynlífinu ertu afar örvuð þarna niðri og leggöngin opnast vel.

Ekki eru allir “lady parts” eins búnir.

Sem dæmi að þá getur snípurinn verið lengra frá leggangaopinu hjá sumum konum. Glæný könnun sýndi að þær konur sem eru með snípinn lengra frá leggangaopinu eiga í meiri erfiðleikum með að fá fullnægingu ella.

Þegar svona er, þá er um að gera að prufa fleiri stellingar en bara trúboðann.

Hún lætur þig vita hvenær rétti tíminn er til að búa til barn.

Já, það er ótrúlega svalt að leggöngin þín skuli geta látið vita hvenær rétti tíminn er til að búa til barn. Leghálsinn gefur frá sér glærann vökva þegar egglos er í gangi. En ef þú ert á pillunni þá verður þú ekki vör við þetta.

Sjá einnig: 7 frábærar ástæður til þess að stunda kynlíf í kvöld

Hún býður upp á svo margar tegundir af unaði.

Allir þessir staðir í leggöngum sem hægt er að örva þýða að þú getur fengið fjórar gerðir af fullnægingum. ( snípurinn, í leggöngum, á báðum stöðum í einu og raðfullnægingar). Leiðréttu mig ef þetta er rangt: karlmenn geta bara fengið eina tegund af fullnægingu.

Eitt orð: fæðing.

Það er ótrúleg staðreynd að leggöngin geta þrýst út barni sem vegur um 3kg. Og dregist svo saman aftur eins og þau eiga að vera. Það tekur að vísu um 6 mánuði að koma leggöngunum í samt eðlilegt horf.

Það er ekkert til sem heitir eðlileg leggöng.

Kvensköpin koma í öllum stærðum og gerðum.

Og þessi ótrúlegi líkamshluti er svo sjálfstæður að hún hreinsar sig meira að segja sjálf.

Staðreyndin er nefnilega, að mikið af þessum vörum sem að konur eru að nota til að þvo sér að neðan eru alls ekki góðar. Þú getur fengið bakteríusýkingar og sveppasýkingar. Passaðu alltaf upp á pH gildi þeirra vara sem þú ert að nota. Best er bara að nota heitt vatn og lyktarlausa sápu og leyfa henni sjálfri að gera það sem hún gerir.

Og spáðu í þessu, það eru fleiri bakteríur í munninum á þér en í leggöngunum.

Greinin birtist fyrst á Heilsutorg.is og er birt með leyfi þeirra.

SHARE