Finnst hún hafa verið svikin af Justin Bieber

Selena Gomez (22) sem var kærasta Justin Bieber (21) um nokkurt skeið finnst hún hafa verið svikin af drengnum, en myndir af honum og Kendall Jenner (19) í keleríi, á Coachella, voru birtar á öllum slúðurmiðlum ytra á dögunum. Selena hafði grunsemdir um að Justin hefði haldið framhjá henni með Kendall á sínum tíma en þau neituðu því staðfastlega.

Þegar þessi mynd birtist svo fannst Selena að þau hafi sannað það sem hún hélt alltaf, að þau hafi verið í ástarsambandi.

justin-bieber-kendall-jenner-bikini-shirtless-coachella-2015-lead

 

„Þessi mynd staðfestir það sem Selena hélt allan tímann… að Justin var að halda framhjá henni með Kendall og að framhjáhaldið hófst á seinasta ári á Coachella. Þau hafa bæði neitað þessu en Selena er ekki sannfærð,“ sagði heimildarmaður HollywoodLife.com. Selena mun hafa fundið óviðeigandi smáskilaboð frá Kendall í síma Justin, meðan hún var með honum.

„Þetta er sárt fyrir hana. Þetta er svona eins og að fá rýting í bakið aftur. Það er ekki það að hún vilji byrja aftur með Justin heldur snýst þetta um svikin. Henni finnst hún hafa verið svikin af Justin og Kendall,“ segir heimildarmaðurinn.

SHARE