Getur það verið í þetta skiptið?

Getur það virkilega verið að Jennifer Aniston (47) sé loksins ófrísk? Leikkonan var stödd í síðustu viku með eiginmanni sínum Justin Theroux á Bahamas og ekki bar á öðru en að leikkonan bæri barn undir belti.

Sjá einnig: Móðir Jennifer Aniston látin

Ekki hafa þau þó enn staðfest sögusagnirnar, en leikkonan hefur þó sagt í viðtali að hana langi til að eignast barn, en að þau væru að gera sitt besta. Móðir hennar lést nýverið og hefur hún átt í erfiðleikum í sambandi sínu með Justin og voru þau næstum hætt saman á tímabili. Óléttan kom Jennifer og Justin alveg að óvörum og segir manneskja sem þeim er náin að hún sé virkilega ófrísk og að hún hafi fengið að vita það í maí, en parið heldur því fyrir sig.

Við skulum vona að fréttirnar eru réttar í þetta skiptið fyrir vinkonu okkar hana Jennifer Aniston.

Sjá einnig: 6 hlutir sem Jennifer Aniston gerir á hverjum morgni

 

354BE19900000578-3642371-image-m-17_1465974246559

354BE17900000578-3642371-image-m-30_1465976626219

354BE0E700000578-3642371-image-a-37_1465977612738

354BDFF500000578-0-image-a-4_1465973803615

354BDF6800000578-3642371-image-m-87_1465977947527

 

 

SHARE