Madonna brotnar niður á tónleikum vegna hörmunganna í París

Madonna gerði hlé á tónleikum sínum í Stokkhólmi á laugardagskvöldið til þess að halda tilfinningaríka ræðu um hryðjuverkaárásina í París á föstudaginn. Hún segir að hún hafði átt í erfiðleikum með að koma fram á tónleikunum, vegna þess hversu þungt þessir atburðir hvíldu á henni.

Hún vildi nota hluta af tónleikunum til þess að tala um hörmungarnar, um það hversu dýrmætt lífið er og að okkur ber að sýna samstöðu.

Sjá einnig: Madonna – Ósigrandi með örgrandi sviðsframkomu

Madonna hafði ætlað sér að hætta við tónleikana um kvöldið, en ákvað þess í stað að halda plönum sínum áfram og þar með ekki gefa hryðjuverkamönnum að stjórna frelsi okkar.

 

SHARE