Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Að undanförnu hefur áhersla þín verið mikið á því að búa til betri venjur og bæta líf þitt og sú vegferð mun halda áfram í febrúar. Þú hefur verið að einblína mest á venjur þínar í vinnunni og tengt heilsunni en nú er komið að því að hugsa um að gera betri venjur og bæta líf þitt á heimilinu.

Hefurðu til dæmis verið að ýta allt of oft á „snooze“ takkann á vekjaraklukkunni þinni? Eða eytt heilli eilífð í að endurraða í ísskápinn heima hjá þér? Þú munt fara að skoða nánar hvernig þú ert að verja tímanum þínum heima við. Gefðu þér tíma til að stíga til baka og meta heildarmyndina og svo þegar þú hefur stækkað litlu atriðin hefurðu sigrast á stóra verkefninu.