Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Þú gætir upplifað tilfinningalegan rússíbana á næstu vikum. Daprar hugsanir eiga það til að sækja á þig, í bland við glaðvær augnablik. Ekki einangra þig frá þínum nánustu vinum, þeir eru þarna fyrir þig ef þú þarft á þeim að halda. Þú ert heimakær og ættir að leyfa þér það í febrúar, en bjóddu endilega vinum í heimsókn.

Ástin svífur yfir vötnum í febrúar og þú gætir átt von á nýrri tegund af ástríðu í sambandinu sem þú ert í nú þegar. Ef þú ert á lausu getur verið að þú finnir draumaprinsinn/prinsessuna í febrúar. Mundu bara að vera með opin huga og þá eru þér allir vegir færir.