Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Hrútar eru þekktir fyrir að vera ákafir og áhugasamir og þessi mánuður mun ekki vera undantekning. Í febrúar muntu skoða öll þín nánu sambönd og endurmeta þau. Þú skoðar hvaða þáttum er ábótavant og hvað þú getur gert til að bæta þau. Þetta getur valdið ágreiningi og spennu, en þetta er nauðsynlegt til að þroskast og dafna.

Eina vandamálið þitt er að þú ert alltof stressuð/aður. Þú ættir að reyna að skipuleggja þig og þá verður vinnan auðveldari. Ekki hika við að leita ráða og stuðnings frá samstarfsfólki þínu. Ekki búast við launahækkun samt á næstunni. Hlustaðu á innsæi þitt til að finna hvað hugur þinn og líkami þarfnast þessa dagana. Stundum þarf ekki mikið til, til þess að endurnýja orkuna þína. Ekki drekka mikið áfengi og sofðu nóg.