Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Stjörnuspá Tvíburans er full af spennandi tækifærum og möguleikum.

Nú er tími til að skapa, skemmta sér og tengjast öðrum á einstakan hátt. Nýir og áhugaverðir einstaklingar geta orðið á vegi þínum og þú munt finna hvað þú getur verið fljót/ur að mynda tengsl og kynnast fólki.

Orkan þín verður í hámarki í byrjun mánaðar og þú ættir að nýta hana til góðra verka sem eru uppbyggileg fyrir þig. Seinna í mánuðinum mun álagið aukast og það getur dregið úr orkunni þinni og þá þarft þú að vera þolinmóð/ur.