Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar – 18. febrúar

Ekki hræðast að skuldbinda þig kæri Vatnsberi. Þú hefur lært að undanförnu að skuldbinding er ekki svo slæm. Þú þarft vissulega þitt pláss og ef þú ert með réttu manneskjunni í lífi þínu ættirðu að fá allt það pláss sem þú þarft.

Þú getur skilið allt pirrandi og leiðinlegt eftir í vinnunni og nýtur þín vel og vandlega innan veggja heimilisins. Forðastu átök við þína nánustu og hlustaðu á innsæi þitt, nú er tíminn til þess.