Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst – 22. september

Þú þarft að læra að biðja um það sem þú vilt í ástinni og ástríðunni í lífinu. Þú finnur fyrir hvatningu til að draga aðeins saman seglin. Þú ert stundum með fullan hugann af allskonar hugmyndum og verkefnum og þarft að læra að koma þeim á blað og koma þeim í verk.

Passaðu hvað þú segir við aðra og þú ættir að venja þig á að hugsa áður en þú talar. Það gengur allt í haginn ástarlífinu, eins og fyrr segir, og ef þú ert að hugsa um skuldbindingu, þá er rétti tíminn núna.