Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Þú átt eftir að taka eftir því í þessum mánuði að hraðinn sem er alltaf á þér á eftir að fara aðeins niður á við. Það mun aðeins hægja á þér. Notaðu jóga og öndun til þess að minnka eirðarleysið sem þú finnur oft fyrir.

Tenging þín við fjölskylduna er sú dýrmætasta sem þú átt og þú veist það og þess vegna ertu algjör fjölskyldumanneskja. Þú ert mikið að flikka upp á og gera umhverfið í kringum þig notalegt og elskar að gera eitthvað að þínu eigin.