Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí – 22. ágúst

Það er svo margt sem gengur vel hjá þér kæra Ljón og þú mátt njóta þess. Ekki taka neinar óþarfa fjárhagslegar áhættur í febrúar. Lífið þitt er auðvelt núna og þú vinnur vinnuna þína án mikillar fyrirhafnar. Þér finnst þú alltaf eiga að fá meira hrós en það er ekkert nýtt. Þú átt afslappað samband við samstarfsfélagana og færð mikinn stuðning.

Ef þú lendir í aðstæðum þar sem fólk er að þrátta eða rífast skaltu halda þig til hlés og forðast að taka þátt í leiðindum. Fólkið sem þú eyðir tíma þínum með í febrúar getur haft stórkostleg áhrif á framtíð þína svo þú skalt vanda þig og hlusta vel á fólkið í kringum þig.