Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Vogin

Vogin
23. september – 22. október

Dásamlega dagfarsprúða Vog. Lífið mun leika svolítið við þig í febrúar og þú ert í góðu jafnvægi. Nýttu þér þennan tíma til að láta ljós þitt skína. Þú gætir þurft að ferðast vegna vinnu í þessum mánuði og þú ættir að forðast ágreining við vinnufélagana, en það ætti ekki að reynast erfitt því þú ert alltaf frekar til í „frið“ en „stríð“ í dagsins amstri.

Passaðu upp á mataræðið og hreyfðu þig reglulega. Líkami þinn er musteri og þú vilt passa upp á hann. Það er kominn tími til að leysa úr flækju sem hefur verið í lífinu þínu og þú munt upplifa mikinn létti þegar það er komið.