Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember – 19. janúar

Í febrúar verður athyglin mikið á þínu uppáhalds viðfangsefni; peningum. Það er möguleiki á að þér geti áskotnast óvæntur peningur eða að þú sért að fara að fá einhverja mikilsmetna gjöf. Það eru auðvitað ekki allar Steingeitur uppteknar af peningum, en þú munt þurfa að velta fyrir þér málum tengdum peningum í febrúar og hvað það er sem raunverulega skiptir þig máli í lífinu.

Mundu bara að hugsa líka um alla aðra í kringum þig og að stundum er allt í lagi að stjórna ekki, heldur leyfa öðrum að stjórna.