Stjörnuspá fyrir febrúar 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars

Þú hefur farið í gegnum svo margt síðastliðið ár og vaxið og þroskast svakalega mikið. Þú þarft samt enn að loka ákveðnum köflum lífs þíns. Taktu þér tíma í febrúar til að hugleiða þær áskoranir sem þú hefur staðið frammi fyrir síðastliðið ár og lærdóminn sem fylgdi þeim.

Ekki flýta þér of mikið að klára ákveðin verkefni því það mun bara bitna á útkomunni og þú með þína fullkomnunaráráttu ert ekki sátt/ur með það. Segðu fólkinu þínu hvað þú kannt mikið að meta þau og gefðu þeim knús.