
Julia Charlene Merfeld, tvítug kona frá Michigan í Bandaríkjunum reyndi að ráða leigumorðingja til að myrða eiginmann sinn.
Juliu fannst auðveldari lausn að láta drepa eiginmann sinn en að sækja um skilnað eins og kemur fram í myndbandinu. Það sem hún vissi ekki var að “leigumorðinginn” sem hún réð til að drepa mann sinn var í raun lögreglumaður. Lögreglumaðurinn sem lést vera leigumorðingi tók samtöl þeirra upp á myndband. Konan brosir og hlær í myndbandinu og virðist ekki finnast þessi ákvörðun erfið.
Yfirvöld segja að Julia hafi viljað líftryggingu mannsins síns og ætlaði að borga leigumorðingjanum 5 milljónir fyrir morðið. Dómur verður kveðinn upp þann 30.júlí.
Sjá einnig:
- 9 ástæður fyrir því að þú ættir að taka þér pásu frá klámáhorfi

- 7 lúmsk einkenni um ME sjúkdóminn

- Er þetta fyrirtíðaspenna eða PMDD?

- Stjörnuspá fyrir ágúst 2026

- Er gleymskan eðlileg eða getur hún verið byrjun á heilabilun?

- Súkkulaði karamellu kaka















