Hvað er völundarsvimi?

Skyndilegur svimi, ógleði, uppköst, minnkuð heyrn og suð fyrir eyra.

Hver er orsökin?

Sjúkdómurinn er í innra eyra og er af völdum breytinga á vökvamagni þar. Þetta getur gerst skyndilega og án fyrirboða. Mögulegt er að mikil streita geti ýtt undir slíkt kast.

Hver eru einkennin?

  • Skyndilegur svimi.
  • Skyndileg ógleði.
  • Uppköst.
  • Verri heyrn og suð fyrir eyra.

Sviminn getur komið án fyrirvara eins og þruma úr heiðskíru lofti og getur orðið svo mikill að nauðsynlegt getur verið að styðja sig við eitthvað til þess að hníga ekki niður. Kastið getur varað í nokkra klukkutíma.

Sjá einnig: Hver eru einkenni heilablóðfalls?

Er hægt að meðhöndla sjúkdóminn?

Ef þú færð tíð köst er nauðsynlegt að forðast aðstæður sem valda streitu sem og að hvíla sig vel. Það að vita að engin hætta er á ferðum sem og að þekkja sjúkdóminn getur haft róandi áhrif þrátt fyrir að kastið sé slæmt.

Engin lyf eru til við sjúkdómnum sem geta læknað hann, komið í veg fyrir kast eða dregið alveg úr einkennunum. Hinsvegar er mögulegt í samráði við lækni eða sérfræðing að fara á róandi meðferð sem getur gagnast við svimanum. Yfirleitt verður þú að prófa þig áfram áður en heppilegasta meðferðin finnst.

Ef köstin eru tíð og verulega slæm er í einstaka tilfellum gripið til skurðaðgerðar.

Batahorfur

Dæmigerður gangur er þannig að fólk fær svimaköst af og til, sumir nokkuð oft og svo koma einkennalaus tímabil sem geta varað upp undir eitt ár. Á 5-10 árum versnar heyrnin smám saman hjá sumum (oftast á öðru eyranu) og á endanum verða svimaköstin vægari jafnvel engin en eftir stendur suð fyrir eyra og í sumum tilfellum skert heyrn.

Aðrir sjúkdómar sem líkjast völundarsvima

Aðrir sjúkdómar sem menn ruglast stundum á eru:

  • Faraldssvimi. Hér er ekki um skilgreindan sjúkdóm að ræða heldur einkenni sem svipar til þeirra sem koma við völundarsvima og því oft sett undir sama hatt.
  • Jafnvægistaugarþroti er sjúkdómur með svipuð einkenni.
  • Talið er að um veirusýkingu sé að ræða í sumum tilfellum, sem veldur svima, í byrjun jafnvel stöðugum en þegar frá líður kemur hann með hléum. Þetta veldur einnig ósjálfráðum hreyfingum í augum.
  • Ógleði, uppköst og óskýr sjón eru algeng einkenni í tilfellum þar sem um svima af völdum sýkingar er að ræða.

Hins vegar er hér ekki um suð fyrir eyra og skerðingu á heyrn að ræða.

Ekki eru til meðferðir við þessum sjúkdómum. Hinsvegar er hægt að slá á sum einkennin með lyfjum. Einkennin hverfa oftast með tímanum án þess að valda varanlegum skaða.

Lestu fleiri áhugaverðar greinar á doktor.is logo

SHARE