Það er gaman að eiga fallegt heimili og vera sífellt að laga til og betrumbæta. Hér eru nokkur skemmtileg húsráð sem gaman er að skoða
Spýta með teygju getur verið kjörin til þess að hengja hluti eins og sólgleraugu, heyrnartól og fleira
Notið klósett- og eldhúsrúllur til að búa til pennastatíf
Seguldiskar sem hægt er að mála
Geymið sængurföt inní koddaverinu sem er í stíl. Þá týnist þetta ekki út um allt
Ótrúlega sniðugt að gera bara svona hak fyrir tannburstana
Klæddu dósir og tóm ílát með fallegum pappír og þau öðlast nýtt líf
Litlir diskar fyrir skart og aðra smáhluti
Ein stöng inn í ruslaskáp fyrir alla spreybrúsana
Gluggahleri fyrir póstinn
Gamlar krukkur sem hægt er að líma saman og nota fyrir penna og fleira