
Brjóstakrabbamein er annað algengasta krabbameinið í konum, á eftir húðkrabbameini.
Það er vel þekkt að gen, hormónar og lífstíll geta haft áhrif á líkurnar á því að þú fáir brjóstakrabbamein. Það minnkar líkurnar á brjóstakrabbameini að hreyfa sig og borða hollan mat. Það eru samt fleiri dagsdaglegar venjur og athafnir sem hafa áhrif á þessar líkur og verða 6 af þeim taldar upp hér fyrir neðan.
Nú er bleikur mánuður og þess vegna fannst okkur kjörið að deila þessum atriðum með ykkur.
Getnaðarvarnarpillan
Estrógen-ið í getnaðarvarnarpillunni kemur í veg fyrir þungun en getur haft neikvæðar afleiðingar fyrir frumur í brjóstunum.
Mikið magn af hormónum í blóðinu getur aukið líkur á brjóstakrabbameini með því að örva um of framleiðslu þessarra fruma í brjóstunum. Í
rannsókn frá árinu 2014 kom í ljós að það voru tengsl milli þess að konur, á aldrinum 20-49 ára, væru að taka getnaðarvarnarpilluna og auknum líkum á brjóstakrabbameini. Það fór samt eftir því hversu mikið magn af hormónum var í pillunni. Ungar konur sem voru á pillu með miklum hormónum (50 míkrógrömm eða meira) voru í meiri hættu en þær sem tóku pillu með minna magni af hormónum (20 míkrógrömm).
Að gefa ekki brjóst
Aukakíló
Ef þú ert að bæta á þig kílóum með hverju árinu, ertu að auka líkurnar á því að þú fáir brjóstakrabbamein eftir tíðahvörf. Það kom fram í
rannsókn að konur sem hafa þyngst um eina fatastærð á hverjum 10 árum frá 20- 70 ára auka líkurnar á því að frá brjóstakrabbamein um 33%. Ef konur fóru hinsvegar upp um 2 fatastærðir urðu líkurnar 77%.
Alkóhól
Því meira alkóhól sem þú drekkur, því meiri líkur eru á brjóstakrabbameini, samkvæmt Amerísku krabbameinssamtökunum. Líkurnar aukast mikið ef drykkirnir eru 2-5 á dag. Í
rannsókn frá árinu 2011 kom í ljós að ef kona neytir 5-10 gramma af alkóhóli á dag, eða 3-6 glös á viku, aukast líkur á brjóstakrabbameini um 15%.
Að borða of seint á kvöldin
Kvöldsnarl getur aukið líkurnar á brjóstakrabbameini. Í nýlegri rannsókn sem birt var í Cancer Epidemiology, Biomarkers & Prevention kom í ljós að ef kona borðar reglulega yfir daginn og borðar kvöldverð snemma að kvöldi getur það minnkað líkur á brjóstakrabbameini.
Að vinna seint á kvöldin
Það getur verið óhjákvæmilegt fyrir þig að vinna vaktavinnu á einhverjum tímapunkti. En það hefur verið sýnt fram á það, í rannsókn frá árinu 2012 að það eykur líkur á brjóstakrabbameini að vinna næturvinnu.
Heimildir: MedicalDaily