Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner varð 18 ára í síðasta mánuði og er ekkert að tvínóna við hlutina en hún sagði frá því í sumar að hún hyggðist sitja fyrir nakin um leið og hún hefði aldur til. Margar ögrandi myndir hafa birst af Jenner undanfarið og má búast við því að það sér bara lognið á undan storminum. Fötin eru ekki alveg fokin en það styttist alveg örugglega í það.
Sjá einnig: Kylie Jenner hyggst sitja fyrir nakin
Kylie prýðir forsíðu tímaritsins Galore þennan mánuðinn og í blaðinu má einnig finna ansi ögrandi myndþátt.