Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember – 21. desember

Bogmaður, þetta ár sem er að klárast er eflaust árið þar sem þú þurftir aðeins að bremsa þig af. Þú ert svo skemmtileg/ur karakter með mikla ævintýraþrá og það mun alltaf fylgja þér. Þú elskar að ferðast og leita á nýjar slóðir en það eru einhver ferðalög í kortunum, erlendis og ekki síður innanlands. Það eru einhver mál innan fjölskyldunnar sem þú þarft að takast á við og sætta þig við það sem þú færð ekki breytt. Fyrri hluta ársins 2024 þarftu að sýna mikla þolinmæði, sem er ekki auðvelt fyrir þig en þú bara verður!

Hlúðu að þér og mundu að hvíla þig. Það verður ekki allt árið sólskin og regnbogar en þú ert að íhuga hvað þú vilt og þarft til að byggja traustan grunn fyrir framtíðina og lífið sem þig dreymir um. Þetta er lærdómsferli – að finna jafnvægið milli þess að hafa gaman og finna fyrir öryggi. Svo, ekki láta langvarandi ótta við það næsta erfiða verkefni halda aftur af þér. Þú átt allt gott skilið og lífið þitt verður ævintýralegt og skemmtilegt.