Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní – 22. júlí

Seinasta ár var mikið heilunar-ár fyrir þig kæri Krabbi. Það gæti verið að þú hafir upplifað spennu á vinnustaðnum og þér finnst þú vera misskilin/n. Þú hefur þurft að taka stökk og elta draumana þína og verður að sleppa tökunum af óttanum við að mistakast og álit annarra. Um leið og nýtt ár er að hefjast skaltu ígrunda hversu ábyrg/ur þú ert fyrir að skapa það líf sem þig langar og dreymir um. Þú ert að vaxa mikið og sjálfsvirðingin þín verður sífellt meiri. Mistök fortíðarinnar stjórna ekki framtíð þinni. Þau eru bara til að læra af og þróast sem manneskja.

Þú ert feimið, tilfinningaríkt og oft skapmikið vatnsmerki sem elskar að hlúa að og sjá um aðra, á sama tíma og þú vilt stundum vera útaf fyrir þig. Ekki berja þig niður með harðri sjálfsgagnrýni. Ef lítið hefur verið að gera í rómantíska hluta lífs þíns getur meira en verið að það sé að verða breyting þar á. Í stað þess að fara alltaf á eftir sömu týpunni er kannski kominn tími til að breyta aðeins til. Ekki flýta þér um of því það getur bara leitt til ástarsorgar.