Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí – 22. ágúst

Seinasta ár hefur gegnt lykilhlutverki í því að kenna þér hvernig á að hugsa meira og dreyma af meiri áræðni. Það kann að hljóma þversagnakennt að segja Ljóni að það þurfi að læra að vera djarft, en síðasta ár hefur látið þig kanna heimsmynd þína upp á nýtt. Þetta snýst allt um að finna leiðir til að tjá óskir þínar á ósvikinn hátt.Þú hefur verið minnt/ur á hversu mikilvægt er að elska sjálfa/n þig og þurfa ekki á viðurkenningu frá öðrum. Þó að það sé alltaf ánægjulegt að fá hrós, ertu búin/n að læra að það þarf ekki alltaf að vera undir öðrum komið að upphefja þig.

Þú elskar allt við ástina. Þú elskar spennuna og dramatíkina og, já, jafnvel sársaukann, því það lætur þér finnast þú vera á lífi. Þú veist að sérhver sterk tilfinning gefur þér tækifæri til að vaxa og þú munt hugsa hvern dag ársins 2024 sem tækifæri til að læra eitthvað nýtt og sjá hlutina frá nýju sjónarhorni.