Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst – 22. september

Meyja, þú ert hagsýnt og röksýnt jarðmerki með heilbrigða skynsemi að leiðarljósi. Þú ert stolt/ur af sterku vinnusiðferði þínu, stöðugri rútínu og getu til að vinna sem ómissandi partur af teymi. Þó þú sért þekkt/ur fyrir að vera mikill skipuleggjandi getur þú verið þinn versti gagnrýnandi. Þú verður að hætta að ofhugsa hlutina og lifa lífinu lifandi. Þú ert vanalega ekki manneskja sem ber tilfinningar þínar á torg en stundum er mikill heilunarmáttur í því að tala um hjartans mál, við einhvern sem þú treystir fyrir öllu.

Þú átt von á góðum fréttum um mitt árið og þú finnur að þú ert að þroskast með hverri einustu lífsreynslu. Þú ert farin/n að sjá hvað það er í þessu heimi sem skiptir virkilega máli og hvað má bara hætta að hugsa um. Þú munt ferðast á árinu og þér munu opnast ný tækifæri sem gætu hugsanlega breytt lífi þínu.