Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember – 19. janúar

Nýtt tímabil er að ganga í garð hjá þér Steingeit og það verður mjög frelsandi fyrir þig. Dragðu djúpt andann því þú ert að nálgast endalok langvarandi og stormasamra breytinga. Komandi ár mun gefa þér tækifæri til að huga aftur að ástríðum þínum og enduruppgötva það sem raunverulega gerir þig hamingjusama/nn. Styrktu tengsl við ástvini, bjóddu fólki í heimsókn og íhugaðu breytingarnar sem hafa átt sér stað á aðstæðum þínum.

Þú munt hafa minni áhyggjur af peningum á nýja árinu sem er mikill léttir. Stundum er sorgin óumflýjanleg í lífinu en í þínu tilviki hefur þú nóg af „verkfærum“ sem geta hjálpað þér að bæta skap þitt þegar þú ert niðurdregin/n. Þetta ár verður að mestu leyti jákvætt og gott hjá þér og því skaltu taka fagnandi. Þú ert mikill hugsuður en ef þú ert að fela tilfinningar þínar skaltu undirbúa þig undir að fara að tjá þig og tilfinningarnar við þann sem þarf að heyra þær.