Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Þú ert stolt/ur af sjálfstæði þínu og ætti að nota fyrsta hluta ársins 2024 í að vera útaf fyrir þig. Það kemur tímabil í vor þar sem þú verður að vinna með öðrum til að ná árangri. Passaðu upp á fjármálin þín í apríl því það gætu komið upp óvænt fjárútlát. Vertu tilbúin/n að eignast nýja vini og segja skilið við þá sem passa alls ekki inn í líf þitt lengur.

Það er margt til að hlakka til á árinu 2024 og þó Hrúturinn sé ekki þekktur fyrir að vorkenna sér þá hefur þú átt þín augnablik af smá sjálfsvorkun á árinu 2023. Árið 2024 verður árið þar sem þú munt klára verkefni sem þú hefur ekki klárað og leysir vandamál sem hafa komið í veg fyrir að þú náir fullum árangri í ákveðnum störfum.

Þú ert leiðtogi að upplagi og ef þú átt kost á að vera í stjórnendahlutverki ættirðu að láta á það reyna. Ef þig langar mikið að halda upp á afmælið þitt ættirðu að láta vaða. Hverju afmæli ber að fagna og hvert ár er gjöf.