Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar – 20. mars

Fiskur ertu tilbúin/n fyrir sviðsljósið? Það gæti hljómað illa fyrir þig því þú ert alls ekki mikið fyrir athygli svona dagsdaglega, en þetta er einstakt sem er að gerast núna. Þú verður til í þessa athygli sem þú munt fá. Treystu því. Ef þú hefur verið að leita að heppilegum tíma til að dekra við sjálfa/n þig gæti góður tími til þess verið í mars.

Þú munt kynnast fjölskyldu þinni og sögu fjölskyldunnar vel á komandi ári og fara að vera meira andlega þenkjandi. Þú ert að kveðja drauga fortíðarinnar og það er sko bara jákvætt og tilefni til að gleðjast. Mundu að tjá þig á einlægan hátt og ekki einangra þig. Aldurinn fer þér vel og mun gera það áfram.