Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar – 18. febrúar

Þú fannst röddina þína á seinasta ári og hefur nógan tíma til að hugsa og velta fyrir þér samböndum þínum og hvers virði þau eru þér. Taktu eftir því hverjir samgleðjast þér virkilega og styðja þig og hverjir gera það ekki. Þú ert að fara að kynnast nýju fólki. Flestir af þeim vilja þér vel en sumir ekki, passaðu þig á þeim síðarnefndu. Það verður mikið um að vera í félagslífinu en þegar líður að áramótum finnur þú að þú ert alveg til í aðeins meiri rólegheit.

Þú ert uppreisnarseggur að eðlisfari og ferð þínar eigin leiðir. Það getur orðið til þess að þú getur látið fólk fara í taugarnar á þér. Þú munt skoða þetta á nýja árinu og finna að þú getur stjórnað tilfinningum þínum mjög vel með jákvæðu hugarfari.