Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Þú elskar að læra nýja hluti og þú munt vera á fullu að læra á nýja árinu og það gefur þér tækifæri til að nálgast drauma þína og vonir á raunsærri hátt. Þú ert mjög félagslynd manneskja og þú þarft aldrei að hafa áhyggjur af því að vera ein/n ef þú vilt það ekki. Þú þarft að ganga frá lausum endum frá árinu 2023, hvort sem það er í samböndum, í vinnunni eða vinasamböndum. Þú þarft að klára þessi mál. Það þýðir ekki að þú þurfir að kasta allri ábyrgð út í buskann heldur einfaldlega að treysta innsæinu þínu.

Til að halda í, eða viðhalda ástinni í lífi þínu þarftu að færa ákveðnar fórnir, eins og að loka á alla fyrrverandi og passa að festast ekki í hlutverki „foreldris“ í sambandinu þínu. Þú þarft maka sem hjálpar þér og styður við þig á meðan þú stækkar sem manneskja, ekki manneskju sem mergsýgur alla orku frá þér með því að haga sér barnalega. Það eina sem þú þarft að gera er að tjá þig á opinskáan hátt.