Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Ef Nautið er þekkt fyrir eitthvað þá er það að vera trygg/ur, ábyrg/ur og yfir meðallagi þrjósk/ur, en þú lærðir ýmislegt á árinu 2023 og ert margs vísari. Þú ert búin/n að breyta hugarfarinu þínu úr því að „þurfa“ að gera eitthvað í það að „langa“ að gera eitthvað. Þetta opnar heiminn fyrir þér og nýjum tækifærum.

Þú munt eyða miklum tíma í að íhuga hverjar vonir þínar og væntingar eru í lífinu og þú mátar þig inn í aðstæður þar sem þú þarft að vinna í hópi og vera hluti af liði. Það er ekki nein þörf á að drífa þig og hugsaðu hlutina vel áður en þú tekur ákvörðun. Þú ert í mikilli sjálfsskoðun um þessar mundir og þó sért með einhver ör á sálinni þýðir það ekki að þessi ör skilgreini hver þú ert.

Taktu þér tíma áður en nýja árið gengur í garð, til að íhuga hver þú ert. Nú er tíminn til að kynnast sjálfri/um þér upp á nýtt, eins og nýrri manneskju sem þú ert að hitta í fyrsta sinn.