Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Þú ert ákveðið vatnsmerki sem elskar að láta hlutina fara eins og þú hafðir hugsað þér, en stundum er það bara alls ekki raunin. Það er kominn tími til að hella þér út í áhugamál þín og það sem þér finnst skemmtilegt. Þú hefur verið mjög upptekin/n af samböndum þínum og vinnu en nú viltu fara að lifa lífinu. Þú þarft að passa þig að slaka vel á líka og vera ekki á sífelldu spani. Árið þitt mun byrja á nýársheiti sem þú munt taka mjög alvarlega og halda þig við það lengi.

Það verða allskonar jákvæðar breytingar á þessu ári og einhver ferðalög. Að gefa sjálfri/um þér leyfi til að sleppa tökunum á hlutum í lífi þínu sem eru alls ekki að virka, gefur þér ákveðið frelsi. Eitt af því sem Sporðdrekar eiga sameiginlegt er að þeir eiga svolítið erfitt með að „taka fótinn af bensíngjöfinni“. Þetta er alls ekki neikvætt heldur einn af stærstu styrkleikum Drekans. Hæfileikinn til að gefa sig alla/n í eitthvað, 100%, er svo sannarlega kostur.