Stjörnuspá fyrir árið 2024 – Vogin

Vogin
23. september – 22. október

Þetta nýja ár sem er að ganga í garð má segja að sé upphaf á nýjum kafla í lífi þínu. Þú færð tækifæri til að sýna allar þínar bestu hliðar og hrista af þér gamla og ryðgaða takta sem gagnast þér ekki lengur. Þú hefur verið í ákveðnu bataferli seinustu tvö ár og mikið litið inn á við. Þetta getur hljómað ógnvekjandi en þetta er bara til hins besta, þú verður bara að hafa trú á sjálfri/um þér, þinni getu og ákvörðunum þínum. Þú ert þekkt/ur fyrir að vinna vel ef þú setur þér eitthvað markmið og hefur mikinn metnað. Hvort sem þetta á við þegar kemur að heilsunni þinni, vinnunni eða persónulega lífinu þá er þetta allt að fara að ganga vel ef þú setur þér markmið.

Passaðu upp á að hvíla þig vel og svefninn verður að vera í lagi. Ef það gagnast þér, er ágætt að búa til áætlun um svefnvenjurnar og reyna að bæta svefninn þannig. Þú verður líka að læra að biðja um hjálp ef þú ert með of mikið á þinni könnu. Það þýðir ekki að þú sért veikgeðja, heldur bara að þú kunnir að skipuleggja tíma þinn.