Myndi vilja eiga fataskáp Kate Moss – Marín Manda með tískublogg

Eins og glöggir lesendur Hún.is hafa tekið eftir þá er Marín Manda Magnúsdóttir farin að skrifa á Hún.is. Hana þekkja margir á Íslandi þrátt fyrir að hún hafi lengi búið í Kaupmannahöfn.

Marín Manda er fatahönnuður, háskólanemi, stílisti, bloggari, og móðir. Hún var í námi í Kaupmannahöfn og rak eigin barnafataverslun í hjarta borgarinnar og það má með sanni segja að  hún hafi góða reynslu af tískuheiminum. Hún er mikill fagurkeri, elskar „vintage“ flíkur, sögulega muni og markaði og myndi glöð vilja eiga fataskáp Kate Moss.

Við erum mjög stoltar af því að fá Marín Möndu til liðs við okkur og vitum að hún verður mjög skemmtileg viðbót við síðuna.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here