Pipp myntuís með Oreo botni – Uppskrift

Innihald

Oreo botn

1 pakki Oreo kexkökur, hakkaðar í matvinnsluvél eins smátt og hægt er.
Settu hökkuðu Oreo kexin í botninn á eldföstu móti og þrýstu niður í botninn og upp á hliðarnar og settu til hliðar.

Ís
6 egg
6 msk. sykur
7 dl. rjómi
1/2 tsk. vanilludropar
2 tsk. piparmyntudropa (3 tsk. fyrir þá sem vilja meira myntubragð)
170 gr. púðursykur
200 g. Pipp piparmyntu gróf saxað
100 g. Pipp piparmyntu fyrir skraut ofan á kökuna
2 dropar af myntugrænum matarlit (gelmatarlit)

Þessi uppskrift er rúmlega 2 til 2.5 lítrar af ís, auðvelt að helminga uppskriftina fyrir minna magn. Best er að nota meðal stórt smelluform til þess að ná ískökunni úr á sem auðveldastan hátt.

1. Þeytið eggjarauðurnar og sykurinn saman þangað til blandan verður ljós og létt.
2. blandið púðursykrinum varlega saman við.
Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við ásamt pippinu grófsöxuðu.
3. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim saman við ásamt vanilludropunum og piparmyntudropunum.
4. Hellið ísblöndunni yfir Oreo botninn og frystið í rúmlega 5 klst.

Þegar ískakan er tekin út er best að…
strjúka hliðarnar á forminu með heitri tusku, þannig losnar það fallega frá og skemmir ekki ísinn. Takið síðan beittan hníf og skerið undir kökuna og færið á diskinn sem þið ætlið að bera kökuna fram á.

Skraut ofan á kökuna
Bræðið 50 g. af pipp ásam 4 msk. af rjóma í potti yfir meðalháum hita og hrærið alveg þangað til þetta hefur blandast vel saman. Skreið hin 50 g. af pippinu til þess að skreyta ofna á kökuna og skreytið svo með brædda pippinu yfir af vild eða notið sem íssósu með ísnum.

Uppskriftina fengum við hjá Thelmu á blogginu hennar Freistingar Thelmu sem má finna hér.

SHARE