Selena Gomez (22) sem var kærasta Justin Bieber (21) um nokkurt skeið finnst hún hafa verið svikin af drengnum, en myndir af honum og Kendall Jenner (19) í keleríi, á Coachella, voru birtar á öllum slúðurmiðlum ytra á dögunum. Selena hafði grunsemdir um að Justin hefði haldið framhjá henni með Kendall á sínum tíma en þau neituðu því staðfastlega.
Þegar þessi mynd birtist svo fannst Selena að þau hafi sannað það sem hún hélt alltaf, að þau hafi verið í ástarsambandi.
„Þessi mynd staðfestir það sem Selena hélt allan tímann… að Justin var að halda framhjá henni með Kendall og að framhjáhaldið hófst á seinasta ári á Coachella. Þau hafa bæði neitað þessu en Selena er ekki sannfærð,“ sagði heimildarmaður HollywoodLife.com. Selena mun hafa fundið óviðeigandi smáskilaboð frá Kendall í síma Justin, meðan hún var með honum.
„Þetta er sárt fyrir hana. Þetta er svona eins og að fá rýting í bakið aftur. Það er ekki það að hún vilji byrja aftur með Justin heldur snýst þetta um svikin. Henni finnst hún hafa verið svikin af Justin og Kendall,“ segir heimildarmaðurinn.