Fimmta hver barnshafandi kona á Íslandi hefur orðið fyrir heimilisofbeldi

Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að fimmta hver barnshafandi kona hefur orðið fyrir ofbeldi. Í mæðraskoðun á heilsugæslustöðvum landsins hefur verið tekin upp reglubundin skimun fyrir heimilisofbeldi. Meðganga er talinn áhættuþáttur fyrir heimilisofbeldi og niðurstaðan úr skimuninni er sú að ein af hverjum fimm konum sem mæta í viðtal í mæðravernd hafa upplifað heimilisofbeldi.

Þetta segir Ástþóra Kristrinsdóttir ljósmóðir, sem er í hópi heilbrigðisstarfsmanna sem hafa þróað verklagsreglur sem fela í sér reglubundna skimun fyrir heimilisofbeldi barnshafandi kvenna.

 Ástþóra sagði í viðtali við Fréttablaðið.

“Það er því miður mjög algengt að konur eigi einhverja sögu um ofbeldi. Það er talað um að það sé um ein af hverjum fimm konum á meðgöngu sem hefur einhvern tímann verið í slíku sambandi. Þessar tölur eru hrikalegar og þetta er hlutur sem við verðum að hjálpa konum að taka á. Rannsóknir sýna einnig að 30 prósent kvenna sem upplifa heimilisofbeldi upplifa það í fyrsta skipti á meðgöngunni. Það má því segja að meðganga sé áhættuþáttur fyrir heimilisofbeldi.”

Mismunandi er hvenær ljósmæður spyrja barnshafandi konur um ofbeldi en það er aldrei gert nema þær séu án maka í viðtalinu. Að sögn Ástþóru hafa flestar ljósmæður landsins tekið verkalagsreglurnar upp og skima fyrir heimilisofbeldi eins vel og þær geta.

Fyrir þær konur sem lenda í heimilisofbeldi á meðgöngu eru ýmis úrræði í boði innan heilsugæslunnar og á vegum félagssamtaka. Ástþóra segir:

“Með því að spyrja erum við að opna fyrir að það sé ekki eðlilegt að vera í svona sambandi og að það sé í lagi að tala um það við einhvern.”

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here