Hugarheimur Árna

65 POSTS 0 COMMENTS
Árni býr í Reykjavík en ólst upp í Garðinum. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og nam stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Að því gefnu hefur hann mikinn áhuga á stjórnmálum, ásamt því að vera mikill áhugamaður um hönnun, arkitektúr og ljósmyndun. Árni hefur gaman að tónlist og leiklist, kvikmyndum og matargerð annarra. Hann viðurkennir fúslega að vera ömurlegur í eldhúsinu og leggur ekki á nokkurn mann að koma í mat til sín. Nýja dellan er að vaða um íslenska náttúru með myndavélina og reyna að ná góðum myndum með misjöfnum árangri. Árni er mikil félagsvera og nýtur sín best í góðra vina hópi og með fjölskyldunni. Hann er dýravinur, en gengur illa að eiga gæludýr. Þau annað hvort drepast eða flýja af heiman. Árni gleymir sér á netinu við að skoða fallega hönnun, heimili og fasteignasíðurnar eru í miklu uppáhaldi. Árni deilir með okkur því sem hann fellur fyrir hverju sinni og reynir að koma víða við í stílum og hönnun til að ná til sem flestra. Árni heldur úti Facebooksíðu þar sem hann deilir hugðarefnum sínum, enda kallar hann síðuna Hugarheim Árna.

Uppskriftir

Focaccia – Ítalskt brauð

Þessi æðislega uppskrift er frá Eldhússystrum. Brauðið er ekkert smá gott! Focacciabrauðca. 25 bitar.Hráefni5 tsk þurrger/50 gr ferskt...

Súkkulaði bollakaka með hnetusmjörskremi

Þessi æðislega uppskrift kemur frá Eldhússystrum og er birt með góðfúslegu leyfi þeirra. Eins og svo oft áður var...

Matarmiklar víetnamskar pönnukökur

Þessi girnilega uppskrift kemur frá Einfalt & Heilnæmt og er birt með þeirra leyfi.