Það eru komnar myndir af vortískunni 2013 hjá Alexander Wang og fyrirsætan á þessum myndum er Malgosia Bela og ljósmyndarinn var Steven Klein.
Það er ekki mikill klæðnaður á þessum myndum, módelið er „aðeins“ undir kjörþyngd og myndatakan er frekar drungaleg.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.