Sýning nemenda í Ljósmyndaskólanum í dag!

Nemendur fyrsta árs Ljósmyndaskólans opna árlega vorsýningu í dag, 25. maí, kl 15.00, í húsakynnum skólans að Hólmaslóð 6, Örfirisey.

Í ár sýna 15 nemendur skapandi ljósmyndir sem eru afrakstur vetrarins.

Viðfangsefni nemenda eru af ýmsum toga; portrett, potrett af köttum, portrett af starfstéttum, heimildaljósmyndir af hjartveikum hetjum, gömlum drossíum og sundmenningu. Ljóðrænar túlkanir, tískumyndir, fantasíur, abstraktsjónir, flóra Íslands og tamningakonur svo fátt eitt sé nefnt.

 

Frekari upplýsingar um sýninguna og skólann er að finna á: www.ljosmyndaskolinn.is

 

Sýningin er opin 16-20 virka daga og 14-18 um helgar.

 

Allir eru velkomnir!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here